FJALLAHJÓLAROKK: 2021
SYÐRA FJALLABAK
TVEIR DAGAR AF HREINU, TÆRU ÆVINTÝRI!
Á Syðra-Fjallabaki er einstök náttúrufegurð og hentar svæðið mjög vel til fjallahjólreiða. Við byrjum ferðina í Hungurfit, hjólum fjallvegi niður í Krók, þaðan á einstigum í Torfahlaup og niður í Álftavatn. Höldum svo áfram Laugarveginn fram hjá Hvanngili og aftur í Emstrur. Seinni daginn hjólum við frá Emstrum og niður í Þórsmörk, sem er seinasti parturinn af Laugarveginum og ein allra skemmtilegasta fjallahjólaleið sem til er.
Stærsti hluti leiðarinnar er á þéttum og skemmtilegum stígum sem eru tiltölulega auðveldir og hraðir yfirferðar með hressilega passlegu mixi af grófum, örlítið tæknilegri einstígum. Trússbíll sér um að koma dótinu okkar á milli skálana á meðan við njótum þess að hjóla.
- DAGUR 1
- BROTTFÖR
- Brunum uppá Fjallabakið í eftirmiðdaginn. Keyrslan tekur rétt um 3 klukkutíma. Komum okkur fyrir í skálanum, minglum yfir kvöldmatnum og förum snemma í háttinn.
- DAGUR 2
- EMSTRUR - KRÓKUR - ÁLFTAVATN
- Leiðirnar sem hjólaðar verða þennan dag eru meðal okkar uppáhalds leiðum á þessu svæði. Bæði er í þeim gott flæði ásamt fjölbreytileika en einnig er það þessi einstaka landslagsumgjörð sem gerir hana svo frábæra. Frekar langur dagur, en hverrar mínútu virði.
- DAGUR 3
- EMSTRUR - FLJÓTSHLÍÐ
- Pökkum saman dótinu okkar og hjólum niður í Fljótshlíðina. Eftir hádegið hjólum við upp Þórólfsfellið á mjög þægilegum fjallvegi og aftur niður magnaða niðurleið. Teygjum saman á þreyttum búknum og kíkjum mögulega í sund áður en rúllað verður heim á leið.
- Birt með fyrirvara um einhverjar lítilsháttar breytingar
- Birt með fyrirvara um einhverjar lítilsháttar breytingar
- 2021
- 25 - 27 júní
- 1 - 3 júlí - FULLBÓKAÐ
- HÓPASTÆRÐ
- 10 - 15 konur
- SÉRHÓPAR!
- Við getum skipulagt þessa ferð fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin leiðir og dagsetningar.
- Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is
- VERÐ
- 62.000 ISK (staðfestingargjald 15.000 ISK)
- Greiðslur með millifærslu: Banki: 308-26-58041, kt. 580411-1850
- INNIFALIÐ
- Kvöldmatur x2, morgunmatur x2
- MIðdegis snakk
- Flutningur og trúss á fólki, búnaði og hjólum til og frá Reykjavík
- Gisting í svefnpokagistingu í fjallaskála x2
- Fjallahjólaleiðsögn
- Leiðarlýsing, kort, nauðsynleg viðgerðartól fyrir hjól og fyrstuhjálparbúnaður
- EKKI INNIFALIÐ
- Fjallahjól og allur persónulegur búnaður sem er nauðsynlegur fyrir hjólaferð
- Hádegisnesti
- Aðgangseyri í sundhallir Suðurlands
- Ferðatryggingar
- Bús, gos og sælgæti
- INNIFALIÐ
- Kvöldmatur x2, morgunmatur x2
- MIðdegis snakk
- Flutningur og trúss á fólki, búnaði og hjólum til og frá Reykjavík
- Gisting í svefnpokagistingu í fjallaskála x2
- Fjallahjólaleiðsögn
- Leiðarlýsing, kort, nauðsynleg viðgerðartól fyrir hjól og fyrstuhjálparbúnaður
- EKKI INNIFALIÐ
- Fjallahjól og allur persónulegur búnaður sem er nauðsynlegur fyrir hjólaferð
- Hádegisnesti
- Aðgangseyri í sundhallir Suðurlands
- Ferðatryggingar
- Bús, gos og sælgæti
- NÆSTU SKREF
- Þegar þú hefur greitt staðfestingargjaldið fyrir ferðina færðu senda kvittun fyrir greiðslunni. Nánari upplýsingar koma síðan nokkrum vikum fyrir brottför.
- SPURNINGAR?
- Endilega sendu okkur tölvupóst ef þú hefur einhverjar spurningar info@bikecompany.is
- MATUR
- Morgun- og kvöldmatur er undirbúinn og reiddur fram af leiðsögumanni í fjallaskálanum.
- Hver og ein nestar sig fyrir hádegisnesti. Það er fín eldhúsaðstaða til þess að undirbúa slíkt.
- Látið vita ef þið hafið séróskir eða ef þið eruð með einhvers konar matarofnæmi.
- GISTING
- Við höfum skálann, sem er alveg fyrir okkur sjálfar. Þið þurfið að mæta með ykkar eigin svefnpoka og handklæði.
Salerni eru inn í skálanum og fín eldhúsaðstaðan en engar sturtur.
- ERFIÐLEIKASTIG
- Ferð fyrir vanar fjallahjólakonur sem telja sig nokkuð vel á sig komnar líkamlega.
Leiðirnar eru á köflum tæknilegar og nauðsynlegt er að hafa góða hraða- og bremsutækni.
Dagleiðir eru um 25 - 40 km. 5 - 8 klst á dag með hádegis hvíldinni.
- TRÚSS
- Berum eingöngu létta bakpoka yfir daginn. Allt annað dót er hægt að geyma í bílnum.
- STÍGAR OG LEIÐIR
- Blanda af grófum fjallvegum og einstigum.
- TRYGGINGAR
- Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.
- ÚTBÚNAÐARLISTI
- Fjallahjól af vandaðri gerð með framdempara eða fulldempað. Hjálmur og hjólaskór sem þurfa ekki að vera klipptir í pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel yfirfarið og í toppstandi fyrir ferð.
- í bakpoka
- Langerma hjólapeysa
- Þunn micro-flíspeysa innanundir
- Þunn dún- eða primaloft úlpa
- Gore-tex stakkur
- Fjallahjólastuttbuxur
- Púðabuxur (stuttar eða síðar)
- 2 aukapör sokkar úr ull
- Hlýir og góðir hjólavettlingar eða hjólagrifflur
- Sólgleraugu og sólvarnarkrem
- Myndavél, Go-Pro, GPS, Garmin...
- Vatnsbrúsar á hjóliðeða camelpoki
- Helstu varahlutir sem gott væri að hafa með fyrir hjól af ykkar gerð!
Á næturstað:
- Handklæði
- Sundföt
- Auka nærfatnaður
- 2 pör af aukasokkum
- Kósíföt og inniskór
- Dúnúlpa
Sameiginlegur búnaður sem hópurinn skiptir með sér:
- Lágmark fyrstuhjálparbúnaður
- Burstar, tuskur og nóg af keðjuolíu
- Pumpur / demparapumpa
- Fjölverkfæri fyrir hjól
- Keðjuþvinga
- Slöngur (ath. með réttum ventlum m.v. hjól)
- Dekkjaviðgerðarsett
- Lítil bensli (plastbönd) / Tesateip
- Keðjuhlekkir
- Bremsuvökvi og blæðiset
- Kaplar fyrir afturbremsur/afturgíra
- Gjörð/dekk
- Komið endilega með það sem þið eigið á ykkar hjól
- Langerma hjólapeysa
- Þunn micro-flíspeysa innanundir
- Þunn dún- eða primaloft úlpa
- Gore-tex stakkur
- Fjallahjólastuttbuxur
- Púðabuxur (stuttar eða síðar)
- 2 aukapör sokkar úr ull
- Hlýir og góðir hjólavettlingar eða hjólagrifflur
- Sólgleraugu og sólvarnarkrem
- Myndavél, Go-Pro, GPS, Garmin...
- Vatnsbrúsar á hjóliðeða camelpoki
- Helstu varahlutir sem gott væri að hafa með fyrir hjól af ykkar gerð!
- Handklæði
- Sundföt
- Auka nærfatnaður
- 2 pör af aukasokkum
- Kósíföt og inniskór
- Dúnúlpa
- Lágmark fyrstuhjálparbúnaður
- Burstar, tuskur og nóg af keðjuolíu
- Pumpur / demparapumpa
- Fjölverkfæri fyrir hjól
- Keðjuþvinga
- Slöngur (ath. með réttum ventlum m.v. hjól)
- Dekkjaviðgerðarsett
- Lítil bensli (plastbönd) / Tesateip
- Keðjuhlekkir
- Bremsuvökvi og blæðiset
- Kaplar fyrir afturbremsur/afturgíra
- Gjörð/dekk
- Komið endilega með það sem þið eigið á ykkar hjól