VESTMANNAEYJAR
DAGSFERÐ Á FJALLAHJÓLI

vestmannaeyjar hjólaferð

HJÓLAÐ UM HEIMAEY

Allir elska að heimsækja Vestmannaeyjar og ef þú kemur í hjólaferð um Heimaey, þá kolfellur þú líklegast fyrir þessum fallegu eyjum. Við bjóðum uppá virkilega flotta fjallahjólaferð sem er pökkuð af fullkomnum einstigum. Þeir liðast um Heimaeynna eins og snákur, í gegnum hraun, meðfram klettablettum og uppá fjallstoppa. Auk ólýsanlegrar fegurðar, hafa eyjarnar yfir að bera mikla sögu og menningu auk bestu veitingastaða landsins! Endum túrinn á síðbúnum hádegisverði á “Gott”.

Hver og ein ferð er skipulögð og hjóluð í samræmi við vilja hópsins, veður og vind.

VERÐ
20.000 ISK

HÓPASTÆRÐ
6 - 10 hjólarar.
Við staðfestum brottför fyrir hverja ferð með minnst 6 einstaklingum.

INNIFALIÐ
  • Flutningur til og frá Reykjavík með hjól
  • Fjallahjólaleiðsögumaður
  • Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
EKKI INNIFALIÐ
  • Ferðir til og frá hjólaleiðum (vegna covid-19, er nauðsynlegt að þátttakendur komi á einkabílum)
  • Fjallahjól og hjálmur
  • Ferðin með Herjólfi milli Landeyjarhafnar (kl. 10:45) og Vestmannaeyja (kl. 17:00)
  • Persónulegur útbúnaður, nauðsynlegur í stutta hjólaferð
  • Nesti eða hádegisverður á Gott
  • Tryggingar

 

MÆTING
Við byrjum ferðin kl. 11.30 á Vestmannaeyjarhöfn.

NÆSTU SKREF
Þegar þú hefur bókað ferðina færðu senda staðfestingu ásamt nánari upplýsingum.

SPURNINGAR?
Endilega sendu okkur tölvupóst ef þú hefur einhverjar spurningar info@bikecompany.is

SÉRHÓPAR!
Við getum skipulagt þessa ferð fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin leiðir og dagsetningar.
Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is

ERFIÐLEIKASTIG
Fínt flæði í þessari leið. Hægt að velja á milli mjög einfaldra leiða fyrir byrjendur sem og torfærarari kafla með krefjandi hindrunum fyrir vant hjólafólk sem býr yfir góðri fjallahjólatækni.
Hjólum um 15 - 20 km á 2 - 3 klst.

STÍGAR OG LEIÐIR
Hjólum mosagróna slóða, mjó einstigi, yfir hraunbreiður og á malarvegum. Algjört ævintýri!

TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.

ÚTBÚNAÐARLISTI
Fjallahjól af vandaðri gerð með framdempara eða fulldempað. Hjálmur og hjólaskór sem þurfa ekki að vera klipptir í pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel yfirfarið og í toppstandi.

  • Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa meðferðis lítinn bakpoka með auka hlífðarfötum og vatnsbrúsa ásamt orkustykki eða súkkulaði
  • Klæðist hlýjum nærfatnaði úr ull eða viðurkenndum gerviefnum og léttum útivistarfatnaði
  • Þykkir fingravettlingar og góðir gönguskór og þunn húfa undir hjálminn eru nauðsynlegir fylgihlutir
  • Þumalputtareglan er að láta sér verða létt kalt áður en hjólað er af stað og passið að klæðast ekki of þykkum fatnaði, frekar þynnri og fleiri flíkum
  • Fínt að hafa með sér aukaföt í bílnum þar sem okkur hættir til að svitna vel í hita leiksins á hjólunum og kólnum því hratt niður þegar við stoppum
  • Alls ekki vera í bómullar- eða gallafatnaði

Við komum með:  
  • Lágmarks fyrstuhjálparbúnað
  • Keðjuolíu- og lása
  • Pumpu / demparapumpu
  • Lítið fjölverkfæri
  • Auka slöngur
  • Verið endilega með nauðsynlegustu varahluti fyrir ykkar hjól
  • TIL LEIGU
    Fulldempuð fjallahjól, Specialize Stumpjumper SL eða svipuð, fyrir 10,000 kr á dag.

    Fjallahjólaferð vestmannaeyjar
    MEIRA HÉR+

    MYNDAALBÚMIÐ

    Ljósmyndir segja meira en mörg orðin. Kíktu á nokkrar ljósmyndir úr ferðum okkar síðastliðin ár.
    vestmannaeyjar hjólaferð
    MEIRA HÉR+

    VÍDEÓ

    Við eigum ekki vídeó um ferðina okkar í Vestmannaeyjum (ennþá). En þú getur kíkt á myndskeið úr öðrum ferðum hér.
    Vestmannaeyjar
    MEIRA HÉR+

    ALLT UM VESTMANNAEYJAR

    Ef þig langar til þess að vita meira og jafnvel allt um Vestmannaeyjar, þá getur þú lesið þig til hér.
    TOP