HÚSAFELL: PRÍVAT DAGSFERÐ Á FJALLAHJÓLI

mtb iceland

MAGNAÐUR HJÓLAHRINGUR!

Það er fátt sem toppar það að hjóla um í íslenskri náttúru, rífa sig frá rútínunni, endurnýja orkuna og láta gleðina taka völd.
Í þessari hjólaferð förum við magnaðan hring í Húsafelli, sem bæði býður uppá ótrúlega náttúrúfegurð og nægilega spennu til þess að gefa adrenalíninu örlítið lausan tauminn. Markmiðið er að koma heim þægilega þreyttar en endurnærðar á sál og líkama eftir ógleymanlega ferð um fjöll, dali, hraun og allt það sem húsfellsk náttúra býður upp á.

LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ
HÚSAFELL
- Leggjum í hann kl. 9:00 frá Skeifunni 11b.
- Hlöðum hjólum, fólki og farangri í og á faratækin og brunum af stað.
- Keyrum í um 2 klukkutíma áleiðis í Húsafell.
Gott er að útbúa listagott hádegisnesti kvöldið áður!
- Byrjum að hjóla um hádegis bilið og verðum á rúntinum í ca. 3 klukkutíma.
Þessi leið er sérstaklega útbúin með ykkur í huga. Engir virkilega tæknilegir erfiðleikar eru í leiðinni, en stundum þarf að fara af hjólinu og reiða yfir nokkra smá búta. Þurfum einnig að stikla ár en að öðru leiti er hún 98% hjólanleg.
- Verðum búnar að hjóla um kl. 16 og förum þá beint í Kraumu sem býður okkar með heitt bað og ljúfa máltíð.
- Kvöldmatur tilbúinn kl. 19:00.
- Kvöldið er okkar og nóttin er ung! Komnar aftur til Reykjavíkur um miðnætti.
KRAUMA
UPPLÝSINGAR
* Krauma eru náttúrlaugar við Deildartunguhver í Reykholtsdal. Hann er vatnsmesti hver Evrópu og skýrt dæmi um þá ógnarorku sem býr í jörðinni, en kraumandi hverinn spúir upp um 180 lítrum af 100°C heitu vatni á sekúndu.
HEIMASÍÐA KRAUMU

VERÐ
17.000 ISK
Greiðslur með millifærslu: Banki: 308-26-58041, kt. 580411-1850
DAGSETNING
5 júní 2021
HÓPASTÆRÐ
10 - 12 hjólarar
INNIFALIÐ
  • Flutningur til og frá Reykjavík með fólk, farangur og hjól
  • Fjallahjólaleiðsögumaður
  • Létt snarl eftir ævintýrið
  • Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
EKKI INNIFALIÐ
  • Fjallahjól og hjálmur
  • Persónulegur útbúnaður, nauðsynlegur í stutta hjólaferð
  • Nesti
  • Aðgangseyrir og kvöldmatur í Kraumu
  • Tryggingar

SPURNINGAR?
Endilega sendið mér línu eða bjallið ef það koma upp einhverjar spurningar.

ERFIÐLEIKASTIG
Stígar og vegir hannaðir með ykkur í huga. Engir tæknilegir erfiðleikar, en kannski farið aðeins út fyrir þægindarammann sem mun gera ykkur þægilega þreyttar en endurnærðar á sál og líkama .
Hjólum um 12 km á 3 - 4 klukkustundum.

STÍGAR OG LEIÐIR
Hjólum mosagróna slóða, þétta kindastíga og á malarvegum. Algjört ævintýri!

TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.

ÚTBÚNAÐARLISTI
Fjallahjól af vandaðri gerð með framdempara eða fulldempað. Hjálmur og hjólaskór sem þurfa ekki að vera klipptir í pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel yfirfarið og í toppstandi.

  • Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa meðferðis lítinn bakpoka með auka hlífðarfötum og vatnsbrúsa ásamt orkustykki eða súkkulaði
  • Klæðist hlýjum nærfatnaði úr ull eða viðurkenndum gerviefnum og léttum útivistarfatnaði
  • Þykkir fingravettlingar og góðir gönguskór og þunn húfa undir hjálminn eru nauðsynlegir fylgihlutir
  • Þumalputtareglan er að láta sér verða létt kalt áður en hjólað er af stað og passið að klæðast ekki of þykkum fatnaði, frekar þynnri og fleiri flíkum
  • Fínt að hafa með sér aukaföt í bílnum þar sem okkur hættir til að svitna vel í hita leiksins á hjólunum og kólnum því hratt niður þegar við stoppum
  • Alls ekki vera í bómullar- eða gallafatnaði

Við komum með:  
  • Lágmarks fyrstuhjálparbúnað
  • Keðjuolíu- og lása
  • Pumpu / demparapumpu
  • Lítið fjölverkfæri
  • Auka slöngur
  • Verið endilega með nauðsynlegustu varahluti fyrir ykkar hjól
  • RAFMAGNSHJÓL
    Specialized Turbo Levo rafhjól til leigu á 9.000 kr. fyrir daginn.
    Við erum með þessi frábæru rafmagnshjól til leigu. Rafmagns hjól er fararskjóti sem gerir hverja ferð fullkomna. Erfiðar brekkur heyra sögunni til en niðurleiðin er jafn fjörug og áður.
    LEVO TURBO

    TOP