NÁMSKEIÐ
HJÓLUM Í TÆKNINA
Námskeið þar sem farið er yfir nokkur grunn-atriði sem að skipta máli til þess að njóta þess í botn að þjóta um á fjallahjóli.
Það er mikilvægt að tileinka sér vissa tækni á fjallahjólinu til þess að vera fljótari að ná tökum á því. Þetta eru örfá og mjög einföld atriði sem flestir eru fljótir að læra og taka miklum framförum í kjölfarið.
- Hvernig stillir þú hjólið fyrir þig?
- Hvernig hjólið er yfirfarið áður en lagt er í hann?
- Beiting líkamans á hjólinu
- Bremsutækni
- Pedalatækni
- Dettutækni
- Leiðarval
Við hjólum stuttan túr í lokin ef veður og aðstæður leyfa.
- DAGSETNINGAR
- 5 júlí, 6 júlí og 7 júlí 2021, kl. 18
- VERÐ
- 5.000 ISK
- Greiðslur með millifærslu: Banki: 308-26-58041, kt. 580411-1850
- HÓPASTÆRÐ
- 4 - 8 hjólarar.
- Við staðfestum námskeiðið með minnst 4 þátttakendum.
- INNIFALIÐ
- Fjallahjólaleiðbeinandi
- Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
- EKKI INNIFALIÐ
- Flutningur til og frá hjólaleið
- Fjallahjól og hjálmur
- Persónulegur útbúnaður, nauðsynlegur í stutta hjólaferð
- Tryggingar
- MÆTING
- Þar sem aðstæður eru bestar hverju sinni. Valið stendur á milli Öskjuhlíðar, Skógræktarinnar við Úlfarsfell, Hólmsheiði eða á góðum stað í Heiðmörk.
- Fjallahjólaleiðbeinandi
- Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
- Flutningur til og frá hjólaleið
- Fjallahjól og hjálmur
- Persónulegur útbúnaður, nauðsynlegur í stutta hjólaferð
- Tryggingar
- SÉRHÓPAR!
- Við getum skipulagt þetta námskeið fyrir sérhópa sem vilja velja sinn eigin tíma og dagsetningar.
- Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is
- ERFIÐLEIKASTIG
- Þetta námskeið er hannað með byrjendur í huga sem vilja kynna sér grunntækni fjallahjólreiða.
- Hjólum um 15 - 20 km á 3 - 4 klukkutímum.
- ÚTBÚNAÐARLISTI
- Fjallahjól með framdempara eða fulldempað. Hjálmur og hjólaskór sem þurfa ekki að vera klipptir í pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé yfirfarið þannig að það virki.
- Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa meðferðis lítinn bakpoka með auka hlífðarfötum og vatnsbrúsa ásamt orkustykki eða súkkulaði
- Klæðist hlýjum nærfatnaði úr ull eða viðurkenndum gerviefnum og léttum útivistarfatnaði
- Þykkir fingravettlingar og góðir gönguskór og þunn húfa undir hjálminn eru nauðsynlegir fylgihlutir
- Þumalputtareglan er að láta sér verða létt kalt áður en hjólað er af stað og passið að klæðast ekki of þykkum fatnaði, frekar þynnri og fleiri flíkum
- Fínt að hafa með sér aukaföt í bílnum þar sem okkur hættir til að svitna vel í hita leiksins á hjólunum og kólnum því hratt niður þegar við stoppum
- Alls ekki vera í bómullar- eða gallafatnaði
-
Við komum með:
- Lágmarks fyrstuhjálparbúnað
- Keðjuolíu- og lása
- Pumpu / demparapumpu
- Lítið fjölverkfæri
- Auka slöngur
- Verið endilega með nauðsynlegustu varahluti fyrir ykkar hjól