FJALLAHJÓLAFJÖR Á HENGLI

hengill fjallahjól

BARA HJÓLAÐ NIÐUR Í MÓTI!

Í þessari ferð þarftu ekkert að klifra heldur sjáum við um að skutla þér upp í upphafspunkt leiðarinnar, nokkru sinnum!

Magnað, geggjað, ógleymanlegt, hrein snilld og fleiri orð í þeim dúr passa best til þess að lýsa upplifuninni á þessum fjallahjólatúr.

Hengilssvæðið er staðsett örstutt frá Reykjavík og hefur allt sem prýðir íslenska náttúru; stórfenglegt landslag, útsýni yfir þjóðgarð og eldfjöll auk óteljandi stíga sem margir hverjir henta fullkomlega fyrir fjallahjólabrölt!

Þetta er krefjandi ferð sem hentar vönum fjallahjólurum.

VERÐ
15.000 ISK

2022
Frá 1. júní - 30 september
Fyrir nánari upplýsingar um dagsetningar og bókanir, sendið okkur fyrirspurn á info@bikecompany.is
HÓPASTÆRÐ
6 - 15 hjólarar

INNIFALIÐ
  • Skutl með farþega og hjól í leiðirnar á Hengli
  • Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
EKKI INNIFALIÐ
  • Ferðir til og frá ION hóteli Nesjavöllum
  • Fjallahjól og hjálmur
  • Persónulegur útbúnaður, nauðsynlegur í stutta hjólaferð
  • Nesti
  • Tryggingar
MÆTING
Við hótel ION kl. 17:00.


SÉRHÓPAR!
Við getum skipulagt þessa ferð fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin leiðir og dagsetningar.
Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is

ERFIÐLEIKASTIG
Þetta eru krefjandi leiðir fyrir vant hjólafólk sem býr yfir góðri fjallahjólatækni.
Hjólum um 15 - 20 km á 3 - 4 klukkutímum.

STÍGAR OG LEIÐIR
Frábærir stígar í einstöku umhverfi. Algjört ævintýri!

TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.

ÚTBÚNAÐARLISTI
Fulldempað fjallahjól af vandaðri gerð. Hjálmur og hjólaskór fyrir flata pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel á góðum dekkjum, yfirfarið og í toppstandi.

  • Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa meðferðis lítinn bakpoka með auka hlífðarfötum og vatnsbrúsa ásamt orkustykki eða súkkulaði
  • Klæðist hlýjum nærfatnaði úr ull eða viðurkenndum gerviefnum og léttum útivistarfatnaði
  • Þykkir fingravettlingar og góðir gönguskór og þunn húfa undir hjálminn eru nauðsynlegir fylgihlutir
  • Þumalputtareglan er að láta sér verða létt kalt áður en hjólað er af stað og passið að klæðast ekki of þykkum fatnaði, frekar þynnri og fleiri flíkum
  • Fínt að hafa með sér aukaföt í bílnum þar sem okkur hættir til að svitna vel í hita leiksins á hjólunum og kólnum því hratt niður þegar við stoppum
  • Alls ekki vera í bómullar- eða gallafatnaði

Við komum með:  
  • Lágmarks fyrstuhjálparbúnað
  • Keðjuolíu- og lása
  • Pumpu / demparapumpu
  • Lítið fjölverkfæri
  • Auka slöngur
  • Verið endilega með nauðsynlegustu varahluti fyrir ykkar hjól
  • TIL LEIGU
    Specialized Turbo Levo rafhjól til leigu á 9.000 kr. fyrir daginn.
    Athugið að þau leigjast aðeins í ferðir hjá Bike Company.

    hengill fjallahjólaferð
    MEIRA HÉR+

    MYNDAALBÚMIÐ

    Ljósmyndir segja meira en mörg orðin. Kíktu á nokkrar ljósmyndir úr ferðum okkar síðastliðin ár.
    hengill
    MEIRA HÉR+

    VÍDEÓ

    Alltaf gaman að skoða stuttar vídeóklippur um fjallahjólreiðar. Hér finnur þú nokkur.
    hengill fjallahjól
    MEIRA HÉR+

    SÉRSNIÐNAR FERÐIR

    Þessi túr er fullkominn fyrir vinnu- og/eða vinahópa. Það er auðveldlega hægt að aðlaga hana og sérsníða á þeirri dags- og tímasetningu sem hverjum og einum hentar best.
    TOP