FJALLAHJÓLAFJÖR Á HENGLI
BARA HJÓLAÐ NIÐUR Í MÓTI!
Í þessari ferð þarftu ekkert að klifra heldur sjáum við um að skutla þér upp í upphafspunkt leiðarinnar, nokkru sinnum!
Magnað, geggjað, ógleymanlegt, hrein snilld og fleiri orð í þeim dúr passa best til þess að lýsa upplifuninni á þessum fjallahjólatúr.
Hengilssvæðið er staðsett örstutt frá Reykjavík og hefur allt sem prýðir íslenska náttúru; stórfenglegt landslag, útsýni yfir þjóðgarð og eldfjöll auk óteljandi stíga sem margir hverjir henta fullkomlega fyrir fjallahjólabrölt!
Þetta er krefjandi ferð sem hentar vönum fjallahjólurum.
- VERÐ
- 15.000 ISK
- 2022
- Frá 1. júní - 30 september
- Fyrir nánari upplýsingar um dagsetningar og bókanir, sendið okkur fyrirspurn á info@bikecompany.is
- HÓPASTÆRÐ
- 6 - 15 hjólarar
- HÓPASTÆRÐ
- 6 - 15 hjólarar
- INNIFALIÐ
- Skutl með farþega og hjól í leiðirnar á Hengli
- Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
- EKKI INNIFALIÐ
- Ferðir til og frá ION hóteli Nesjavöllum
- Fjallahjól og hjálmur
- Persónulegur útbúnaður, nauðsynlegur í stutta hjólaferð
- Nesti
- Tryggingar
- MÆTING
- Við hótel ION kl. 17:00.
- SÉRHÓPAR!
- Við getum skipulagt þessa ferð fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin leiðir og dagsetningar.
- Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is

- ERFIÐLEIKASTIG
- Þetta eru krefjandi leiðir fyrir vant hjólafólk sem býr yfir góðri fjallahjólatækni.
- Hjólum um 15 - 20 km á 3 - 4 klukkutímum.
- STÍGAR OG LEIÐIR
- Frábærir stígar í einstöku umhverfi. Algjört ævintýri!
- TRYGGINGAR
- Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.
- ÚTBÚNAÐARLISTI
- Fulldempað fjallahjól af vandaðri gerð. Hjálmur og hjólaskór fyrir flata pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel á góðum dekkjum, yfirfarið og í toppstandi.
- Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa meðferðis lítinn bakpoka með auka hlífðarfötum og vatnsbrúsa ásamt orkustykki eða súkkulaði
- Klæðist hlýjum nærfatnaði úr ull eða viðurkenndum gerviefnum og léttum útivistarfatnaði
- Þykkir fingravettlingar og góðir gönguskór og þunn húfa undir hjálminn eru nauðsynlegir fylgihlutir
- Þumalputtareglan er að láta sér verða létt kalt áður en hjólað er af stað og passið að klæðast ekki of þykkum fatnaði, frekar þynnri og fleiri flíkum
- Fínt að hafa með sér aukaföt í bílnum þar sem okkur hættir til að svitna vel í hita leiksins á hjólunum og kólnum því hratt niður þegar við stoppum
- Alls ekki vera í bómullar- eða gallafatnaði
-
Við komum með:
- Lágmarks fyrstuhjálparbúnað
- Keðjuolíu- og lása
- Pumpu / demparapumpu
- Lítið fjölverkfæri
- Auka slöngur
- Verið endilega með nauðsynlegustu varahluti fyrir ykkar hjól