RAFMAGNAÐ FJALLAHJÓLAROKK
Á FJALLABAKI!

FJALLAHJÓLAROKK 

Fjallabak þverað frá norðri til suðurs. Fyrri daginn er hjólað frá Landmannahelli upp Pokahrygg, þaðan yfir Reykjadalina og niður í Hungurfit. Seinni daginn hjólum við áleiðis frá Hungurfit yfir í Krók, þaðan niður í Emstrur í gegnum Þverárbotna og endum á Einhyrningsflötum. Þær gerast varla betri hjólaleiðirnar!

ATHUGIÐ AÐ ÞESSI FERÐ ER EINGÖNGU FYRIR RAFMAGNSHJÓL


DAGUR 1
LANDMANNAHELLIR
Mæting í Sörlaskeið kl. 16:00 og brottför ekki seinna en kl. 17:00. Keyrum á Mathöll Selfoss þar sem við minglum yfir kvöldverði. Leggjum síðan í hann aftur og verðum komnar ekki mikið seinna en um 21:00 á gististað. Komum okkur fyrir í skálanum, minglum og förum snemma í háttinn.
DAGUR 2
REYKJADALIR
Brottför á hjólunum frá Landmannahelli. Leiðin er að mestu á frábærlega skemmtilegum fjallvegum þar til komið er að Laufafelli. Vöðum tvær stórar jökulár á leiðinni. Vegalengd um 40 km.
DAGUR 3
EMSTRUR
Brottför á hjólunum beint frá Hungurfit og sem leið liggur með fram Hvítmögu niður að Krók. Þurfum mikið að sulla í lækjarsprænum og vaða/hjóla yfir a.m.k eina stóra á. Frá Krók tekur við einstaklega skemmtilegur moldarvegur sem breytist annað kastið í einstigi. Hjólum síðan í gegn um Þverárbotna og endum við Einhyrning. Vegalengd um 20 km.
Birt með fyrirvara um einhverjar lítilsháttar breytingar

2025
12 - 14 september

HÓPASTÆRÐ
15 - 20 konur
VERÐ
89.000 ISK (25% staðfestingar gjald) ATH að það þarf að fara alla leið í greiðsluferlinu áður en kemur að því að velja að greiða fullt gjald eða staðfestingargjald.

INNIFALIÐ
  • Kvöldmatur x1, morgunmatur x2
  • Flutningur á fólki og hjólum til og frá Reykjavík
  • Gisting í tvær nætur í svefnpokaplássi í fjallaskálum
  • Fjallahjólaleiðsögn
  • Leiðarlýsing, kort, nauðsynleg viðgerðartól fyrir hjól og fyrstuhjálparbúnaður
EKKI INNIFALIÐ
  • Rafmagnsfjallahjól og allur persónulegur búnaður sem er nauðsynlegur fyrir hjólaferð
  • Kvöldmatur á Selfossi
  • Hádegisnesti og miðdegis snakk
  • Ferðatryggingar
  • Bús, gos og sælgæti

 

NÆSTU SKREF
Þegar þú hefur greitt staðfestingargjaldið fyrir ferðina færðu senda kvittun fyrir greiðslunni. Nánari upplýsingar koma síðan nokkrum vikum fyrir brottför.

SPURNINGAR?
Endilega sendu okkur tölvupóst ef þú hefur einhverjar spurningar info@bikecompany.is

MATUR
Morgun- og kvöldmatur verður útbúinn af leiðsögumönnum og staffi Bike Company. Þið takið með ykkur hádegisnesti sem þið útbúið í skálunum um morguninn.
Látið vita ef þið hafið séróskir eða ef þið eruð með einhvers konar matarofnæmi.

GISTING
Fjallaskálarnir Landmannahellir og Hungurfit. Rúmgóðir, snyrtilegir og þægilegir. Fullkomlega staðsett fyrir leiðirnar sem verða farnar í þessari ferð.

ERFIÐLEIKASTIG
Ferð fyrir nokkuð vanar fjallahjólakonur sem telja sig nokkuð vel á sig komnar líkamlega. Leiðirnar eru ekki tæknilegar og nauðsynlegt er að hafa góða hraða- og bremsutækni. Dagleiðir eru um 20 -40 km. 6 - 7 klst hvorn dag með hádegis hvíldinni.

TRÚSS
Berum eingöngu létta bakpoka yfir daginn. Allt annað dót fer með trússbílnum.

STÍGAR OG LEIÐIR
Að mestu leiti frábærir fjallvegir.

TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.

ÚTBÚNAÐARLISTI
Rafmagnsfjallahjól af vandaðri gerð með framdempara eða fulldempað. Hjálmur og hjólaskór sem þurfa ekki að vera klipptir í pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel yfirfarið og í toppstandi fyrir ferð.

í bakpoka
  • Langerma hjólapeysa
  • Þunn micro-flíspeysa innanundir
  • Þunn dún- eða primaloft úlpa
  • Gore-tex stakkur
  • Fjallahjólastuttbuxur
  • Púðabuxur (stuttar eða síðar)
  • 2 aukapör sokkar úr ull
  • Hlýir og góðir hjólavettlingar eða hjólagrifflur
  • Sólgleraugu og sólvarnarkrem
  • Myndavél, Go-Pro, GPS, Garmin...
  • Vatnsbrúsar á hjóliðeða camelpoki
  • Helstu varahlutir sem gott væri að hafa með fyrir hjól af ykkar gerð!
Á næturstað:
  • Handklæði
  • Sundföt
  • Auka nærfatnaður
  • 2 pör af aukasokkum
  • Kósíföt og inniskór
  • Dúnúlpa
Sameiginlegur búnaður sem hópurinn skiptir með sér:  
  • Lágmark fyrstuhjálparbúnaður
  • Burstar, tuskur og nóg af keðjuolíu
  • Pumpur / demparapumpa
  • Fjölverkfæri fyrir hjól
  • Keðjuþvinga
  • Slöngur (ath. með réttum ventlum m.v. hjól)
  • Dekkjaviðgerðarsett
  • Lítil bensli (plastbönd) / Tesateip
  • Keðjuhlekkir
  • Bremsuvökvi og blæðiset
  • Kaplar fyrir afturbremsur/afturgíra
  • Gjörð/dekk
  • Komið endilega með það sem þið eigið á ykkar hjól
fjallahjólarokk
MEIRA HÉR +

MYNDAALBÚMIÐ

Ljósmyndir segja meira en mörg orðin. Kíktu á nokkrar ljósmyndir úr ferðum okkar síðastliðin ár.
Fjallahjólarokk
MEIRA HÉR+

VÍDEÓ

Vídeó úr fyrsta FjallaHjólaRokkinu árið 2014. Mögnuð ferð þar sem stemmingin var alls ráðandi þrátt fyrir erfiðar aðstæður og storm sem geysaði í stórum hluta ferðarinnar. Takið eftir hvað tískan hefur breyst á aðeins nokkrum árum!
MTB ICELAND
MEIRA HÉR+

BLAÐAGREIN

Þessi grein kom út í júní 2019 og fjallar um FjallaHjólaRokkið það sama ár. Við vorum 30 konur sem hjóluðu í 3 daga uppá hálendinu og voru sumar þeirra að prófa fjallahjólasportið í fyrsta skiptið. Algjörar hetjur!
TOP