HATTA OG REYNISFJALL
DAGSFERÐ Á FJALLAHJÓLI
MASTERPÍS FJALLAHJÓLADAGUR Á FRÁBÆRUM STÍGUM
Leiðin sem við hjólum er hreint masterpís, bæði vegna flæðis og landslagsfegurðar. Við byrjum á því að hjóla gamlan fjallveg alla leið uppá fjallið Höttu og þaðan niður göngustíg niður í þorpið aftur. Seinni leiðin liggur upp veginn sem liðast eins og snákur uppá Reynisfjall þar sem tekur við einstigi meðfram öllu klettabeltinu. Útsýnið sem við fáum yfir svarta sanda suðurstrandarinnar til beggja átta er ólýsanlegt. Hjólum hring á fjallinu og endum á að hjóla niður sama fjallveg til baka í þorpið. Nuddum þreyttan búkinn í heita pottinum í sundlauginni í Vík (ef Víðir leyfir) áður en rúllað verður heim á leið .
Þetta er frekar krefjandi ferð en hentar öllum þeim sem eru í fínu formi og vilja prófa að hjóla á fjöllum.
- VERÐ
- 20.000 ISK
- HÓPASTÆRÐ
- 6 - 10 hjólarar.
- Við staðfestum brottför fyrir hverja ferð með minnst 6 einstaklingum.
- INNIFALIÐ
- Flutningur til og frá Reykjavík með hjól
- Fjallahjólaleiðsögumaður
- Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
- EKKI INNIFALIÐ
- Ferðir til og frá hjólaleiðum (vegna covid-19, er nauðsynlegt að þátttakendur komi á einkabílum)
- Fjallahjól og hjálmur
- Persónulegur útbúnaður, nauðsynlegur í stutta hjólaferð
- Nesti
- Tryggingar
- MÆTING
- Við Kötlusetur í Vík í Mýrdal kl. 11:00.
- NÆSTU SKREF
- Þegar þú hefur bókað ferðina færðu senda staðfestingu og nánari upplýsingar.
- SPURNINGAR?
- Endilega sendu okkur tölvupóst ef þú hefur einhverjar spurningar info@bikecompany.is
- SÉRHÓPAR!
- Við getum skipulagt þessa ferð fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin leiðir og dagsetningar.
- Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is
- ERFIÐLEIKASTIG
- Frekar krefjandi ferð en vel gerlegt fyrir alla þá sem hafa góðu formi og eru til í að prófa að hjóla á fjöllum.
- Hjólum um 20 km á 4 - 5 klukkutímum.
- STÍGAR OG LEIÐIR
- Gamlir fjallvegi, rollu- og göngustígar. Engir tæknilega erfiðir kaflar á leiðunum. Algjört ævintýri!
- TRYGGINGAR
- Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.
- ÚTBÚNAÐARLISTI
- Fulldempað fjallahjól af vandaðri gerð. Hjálmur og hjólaskór fyrir flata pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel á góðum dekkjum, yfirfarið og í toppstandi.
- Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa meðferðis lítinn bakpoka með auka hlífðarfötum og vatnsbrúsa ásamt orkustykki eða súkkulaði
- Klæðist hlýjum nærfatnaði úr ull eða viðurkenndum gerviefnum og léttum útivistarfatnaði
- Þykkir fingravettlingar og góðir gönguskór og þunn húfa undir hjálminn eru nauðsynlegir fylgihlutir
- Þumalputtareglan er að láta sér verða létt kalt áður en hjólað er af stað og passið að klæðast ekki of þykkum fatnaði, frekar þynnri og fleiri flíkum
- Fínt að hafa með sér aukaföt í bílnum þar sem okkur hættir til að svitna vel í hita leiksins á hjólunum og kólnum því hratt niður þegar við stoppum
- Alls ekki vera í bómullar- eða gallafatnaði
-
Við komum með:
- Lágmarks fyrstuhjálparbúnað
- Keðjuolíu- og lása
- Pumpu / demparapumpu
- Lítið fjölverkfæri
- Auka slöngur
- Verið endilega með nauðsynlegustu varahluti fyrir ykkar hjól