KRÓKUR – EMSTRUR – ÞÓRSMÖRK: 2 HJÓLADAGAR

MTB ICELAND

 

“MUST DO” LEIÐIR!

Allir fjallahjólarar verða einhvern tímann að hjóla Torfahlaup í gegnum Krók og úr Emstrum niður í Þórsmörk! Tveir magnaðir hjóladagar sem innihalda landsins bestu hjólaleiðir!

Við byrjum ferðina í Hungurfit á fjallvegi í Krók, þaðan áfram á einstigum í Torfahlaup og niður í Álftavatn. Höldum svo áfram inn á Laugarvegsslóðann fram hjá Hvanngili og endum aftur á fjallvegi í Emstrur. Seinni daginn hjólum við frá Emstrum og niður í Þórsmörk, sem er seinasti parturinn af Laugarveginum og ein allra skemmtilegasta fjallahjólaleið sem til er.

Stærsti hluti leiðarinnar er á þéttum og skemmtilegum stígum sem eru tiltölulega auðveldir og hraðir yfirferðar með hressilega passlegu mixi af grófum, örlítið tæknilegri einstígum. Trússbíll sér um að koma dótinu okkar á milli skálana á meðan við njótum þess að hjóla.

DAGSETNINGAR
20 - 22 ágúst 2021

HÓPASTÆRÐ
6 - 8 manns

VERÐ
62.000 ISK (staðfestingargjald 15.000 ISK)

Greiðslur með millifærslu: Banki: 308-26-58041, kt. 580411-1850
INNIFALIÐ
  • Kvöldmatur x1, hádegisnesti x2, morgunmatur x2
  • MIðdegis snakk
  • Flutningur á fólki og hjólum til og frá Reykjavík
  • Gisting í svefnpokaplássi í Hungurfit og Básum
  • Fjallahjólaleiðsögn
  • Leiðarlýsing, kort, nauðsynleg viðgerðartól fyrir hjól og fyrstuhjálparbúnaður
EKKI INNIFALIÐ
  • Fjallahjól og allur persónulegur búnaður sem er nauðsynlegur fyrir hjólaferð
  • Ferðatryggingar
  • Bús, gos og sælgæti

NÆSTU SKREF
Þegar þú hefur greitt fyrir ferðina færðu sendar nánari upplýsingar.

SPURNINGAR?
Endilega sendu okkur tölvupóst ef þú hefur einhverjar spurningar info@bikecompany.is


SÉRHÓPAR!
Við getum skipulagt þessa ferð fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin leiðir og dagsetningar.
Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is

DAGUR 1
BROTTFÖR
Brunum uppá Fjallabakið í eftirmiðdaginn. Brottför um kl. 19:00. Keyrslan tekur rétt tæpa 3 klukkutíma. Komum okkur fyrir í skálanum í Hungurfitjum, minglum yfir kvöldsnakkinu og förum snemma í háttinn..
DAGUR 2
KRÓKUR - EMSTRUR
Leiðirnar sem hjólaðar verða þennan dag eru meðal okkar uppáhalds leiðum á þessu svæði. Bæði er í þeim gott flæði með mix af fjallvegum og frábærum einstígum ásamt fjölbreytileika en einnig er það þessi einstaka landslagsumgjörð sem gerir hana alveg einstaka. Frekar langur dagur eða um 40 km með um 620 metra hækkun og 740 metra í lækkun, en hverrar mínútu virði.
DAGUR 3
EMSTRUR - ÞÓRSMÖRK
Eftir morgunmat hjólum við beint frá skálanum okkar eftir söndugum malarvegum niður í Emstrur. Þaðan tekur við seinasti parturinn af Laugarveginum sem er talin ein allra skemmtilegasta fjallahjólaleið sunnan heiða. Hægt að taka nokkur aukatvist í Þórsmörkinni áður en hjólað er yfir í Bása til móts við trússbílinn okkar. Hjólum um 25 km með um 700 metra hækkun og 1000 metra lækkun.
Birt með fyrirvara um einhverjar lítilsháttar breytingar

MATUR
Morgun- og kvöldmatur er undirbúinn og reiddur fram af leiðsögumanni. Hádegisnestið er úr úlvalshráefnum og smurt af hverjum og einum eftir morgunmatinn.
Látið vita ef þið hafið séróskir eða ef þið eruð með einhvers konar matarofnæmi.

GISTING
Við gistum fyrri nóttina í Hungurfit þar sem hefur verið skálaaðstaða frá árinu 1963. Árið 2013 var nýr skáli tekið í notkun á Hungurfitjum sem tekur 50 manns og er einn af nútímalegustu fjallaskálum á Íslandi, með rennandi vatni, vatnssalerni og rafmagni. Seinni nóttin er í Mosum sem við höfum alveg fyrir okkur sjálf. Hann býr vatnsalernum og rafmagni (engar sturtur). Þið þurfið að mæta með ykkar eigin svefnpoka og handklæði.

ERFIÐLEIKASTIG
Mælum ekki með þessari ferð fyrir byrjendur og/eða lofthrædda. Leiðirnar eru á köflum tæknilegar og nauðsynlegt er að hafa mjög góða hraða- og bremsutækni. Dagleiðir eru um 25 - 40 km. 5 - 7 klst á dag með hádegis hvíldinni.

TRÚSS
Berum eingöngu létta bakpoka yfir daginn. Allt annað dót er hægt að geyma í bílnum.

STÍGAR OG LEIÐIR
Að mestu leiti frábær einstigi með mixi af fjallvegum í upphafi og enda leiðanna.

TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og við ráðleggjum þér að athuga fyrir brottför hvort að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.

ÚTBÚNAÐARLISTI
Fjallahjól af vandaðri gerð með framdempara eða fulldempað. Hjálmur og hjólaskór sem þurfa ekki að vera klipptir í pedala (jafnvel betra að vera með flata pedala). Afar mikilvægt að hjólið sé vel yfirfarið og í toppstandi fyrir ferð.

í bakpoka
  • Langerma hjólapeysa
  • Þunn micro-flíspeysa innanundir
  • Þunn dún- eða primaloft úlpa
  • Gore-tex stakkur
  • Fjallahjólastuttbuxur
  • Púðabuxur (stuttar eða síðar)
  • 2 aukapör sokkar úr ull
  • Hlýir og góðir hjólavettlingar eða hjólagrifflur
  • Sólgleraugu og sólvarnarkrem
  • Myndavél, Go-Pro, GPS, Garmin...
  • Vatnsbrúsar á hjóliðeða camelpoki
  • Helstu varahlutir sem gott væri að hafa með fyrir hjól af ykkar gerð!
Á næturstað:
  • Svefnpoki
  • Handklæði
  • Sundföt
  • Auka nærfatnaður
  • 2 pör af aukasokkum
  • Kósíföt og inniskór
  • Dúnúlpa
Sameiginlegur búnaður sem hópurinn skiptir með sér:
  • Lágmark fyrstuhjálparbúnaður
  • Burstar, tuskur og nóg af keðjuolíu
  • Pumpa / demparapumpa
  • Fjölverkfæri fyrir hjól
  • Auka "29 dekk
  • Slöngur
  • Helstu verkfærili>
  • Komið endilega með það sem þið eigið á ykkar hjól

TIL LEIGU
Specialized Turbo Levo rafhjól til leigu á 18.000 kr. fyrir ferðina. Þessi fararskjóti gerir hverja ferð fullkomna. Erfiðar brekkur heyra sögunni til og niðurleiðin er jafn fjörug og áður.
LEVO TURBO

TOP