HVALEYRARVATN OG HELGAFELL
Á RAFMAGNSFJALLAHJÓLI

Hvaleyrarvatn og nágrenni er stórkostlegt leiksvæði, aðeins steinsnar frá miðbæ Reykjavíkur. Þar er úr miklu að moða fyrir alla sem hafa gaman af fjörlegum fjallahjólreiðum í einstöku umhverfi.
Við byrjum á léttri upphitun á malarvegi sem liggur frá Hvaleyrarvatni að Stórhöfða, þar tekur við mjög skemmtilegur stígur sem getur verið ansi tæknilega krefjandi á köflum. Þaðan er hægt að velja að hjóla einstigi yfir mosavaxið helluhraunið að Kaldárseli og áfram hringinn í kring um Helgafellið, eða fara í kringum Stórhöfðann og jafnvel upp á toppinn fyrir þá hörðustu.
Í skóginum í kring um vatnið er einnig að finna urmul einstiga sem eru eins og hannaðir fyrir fjallahjólafjör.
Hver og ein ferð er skipulögð og hjóluð í samræmi við vilja hópsins, veður og vind.
- VERÐ
- 29.000 ISK
- HÓPASTÆRÐ
- 2 - 8 hjólarar
- INNIFALIÐ
- Fjallahjólaleiðsögumaður
- Specialized Turbo Levo rafmagns fjallahjól og hjálmur
- Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
- EKKI INNIFALIÐ
- Flutningur til og frá hjólaleið
- Persónulegur útbúnaður, nauðsynlegur í stutta hjólaferð
- Nesti
- Tryggingar

- BÓKA FERÐ
- Við skipuleggjum þessa ferð eingöngu fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin dagsetningar.
- Sendið okkur fyrirspurn: info@bikecompany.is
- ERFIÐLEIKASTIG
- Fínt flæði í þessari leið. Hægt að velja á milli mjög einfaldra leiða fyrir byrjendur sem og torfærari kafla með krefjandi hindrunum fyrir vant hjólafólk sem býr yfir góðri fjallahjólatækni.
- STÍGAR OG LEIÐIR
- Hjólum mosagróna slóða, mjó einstigi, yfir hraunbreiður og á malarvegum. Algjört ævintýri!
- TRYGGINGAR
- Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.
- ÚTBÚNAÐARLISTI
- Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa meðferðis lítinn bakpoka með auka hlífðarfötum og vatnsbrúsa ásamt orkustykki eða súkkulaði
- Klæðist hlýjum nærfatnaði úr ull eða viðurkenndum gerviefnum og léttum útivistarfatnaði
- Þykkir fingravettlingar og góðir gönguskór og þunn húfa undir hjálminn eru nauðsynlegir fylgihlutir
- Þumalputtareglan er að láta sér verða létt kalt áður en hjólað er af stað og passið að klæðast ekki of þykkum fatnaði, frekar þynnri og fleiri flíkum
- Fínt að hafa með sér aukaföt í bílnum þar sem okkur hættir til að svitna vel í hita leiksins á hjólunum og kólnum því hratt niður þegar við stoppum
- Alls ekki vera í bómullar- eða gallafatnaði
-

- RAFMAGNSHJÓL
- Specialized Turbo Levo rafmagnshjól
- Við erum með þessi frábæru rafmagnshjól innifalin í ferðinni. Rafmagns hjól er fararskjóti sem gerir hverja ferð fullkomna. Erfiðar brekkur heyra sögunni til en niðurleiðin er jafn fjörug og áður.

MEIRA HÉR+
MYNDAALBÚMIÐ
Ljósmyndir segja meira en mörg orðin. Kíktu á nokkrar ljósmyndir úr ferðum okkar síðastliðin ár.

MEIRA HÉR+
VÍDEÓ
Við eigum ekki vídeó úr ferðum okkar um slóðir Hvaleyrarvatns og Helgafells (ennþá). En þú getur kíkt á myndskeið úr öðrum ferðum hér.