Hvaleyrarvatn og nágrenni er stórkostlegt leiksvæði, aðeins steinsnar frá miðbæ Reykjavíkur. Þar er úr miklu að moða fyrir alla sem hafa gaman af fjörlegum fjallahjólreiðum í einstöku umhverfi.
Við byrjum á léttri upphitun á malarvegi sem liggur frá Hvaleyrarvatni að Stórhöfða, þar tekur við mjög skemmtilegur stígur sem getur verið ansi tæknilega krefjandi á köflum. Þaðan er hægt að velja að hjóla einstigi yfir mosavaxið helluhraunið að Kaldárseli og áfram hringinn í kring um Helgafellið, eða fara í kringum Stórhöfðann og jafnvel upp á toppinn fyrir þá hörðustu.
Í skóginum í kring um vatnið er einnig að finna urmul einstiga sem eru eins og hannaðir fyrir fjallahjólafjör.
Hver og ein ferð er skipulögð og hjóluð í samræmi við vilja hópsins, veður og vind.
Fínt flæði í þessari leið. Hægt að velja á milli mjög einfaldra leiða fyrir byrjendur sem og torfærari kafla með krefjandi hindrunum fyrir vant hjólafólk sem býr yfir góðri fjallahjólatækni.
STÍGAR OG LEIÐIR
Hjólum mosagróna slóða, mjó einstigi, yfir hraunbreiður og á malarvegum. Algjört ævintýri!
TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.
ÚTBÚNAÐARLISTI
Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa meðferðis lítinn bakpoka með auka hlífðarfötum og vatnsbrúsa ásamt orkustykki eða súkkulaði
Klæðist hlýjum nærfatnaði úr ull eða viðurkenndum gerviefnum og léttum útivistarfatnaði
Þykkir fingravettlingar og góðir gönguskór og þunn húfa undir hjálminn eru nauðsynlegir fylgihlutir
Þumalputtareglan er að láta sér verða létt kalt áður en hjólað er af stað og passið að klæðast ekki of þykkum fatnaði, frekar þynnri og fleiri flíkum
Fínt að hafa með sér aukaföt í bílnum þar sem okkur hættir til að svitna vel í hita leiksins á hjólunum og kólnum því hratt niður þegar við stoppum
Alls ekki vera í bómullar- eða gallafatnaði
RAFMAGNSHJÓL
Specialized Turbo Levo rafmagnshjól
Við erum með þessi frábæru rafmagnshjól innifalin í ferðinni. Rafmagns hjól er fararskjóti sem gerir hverja ferð fullkomna. Erfiðar brekkur heyra sögunni til en niðurleiðin er jafn fjörug og áður.