RAFMÖGNUÐ HAMINGJA VIÐ HEKLU

2 HJÓLADAGAR/1 NÓTT Í SVEITAGISTINGU

E-MTB VOLCANO ADVENTURE

FERÐ SEM LIFIR LENGI Í MINNINGUNNI!

Að prófa að hjóla um fallega landið okkar í fyrsta skiptið á ævinni, er einstök upplifun sem að ekki er hægt að lýsa með orðum og sem lifir lengi í minningunni. Órökstudd og óvísindalega staðreynd sem er niðurstaða margra ára reynslu í hjólaferðaleiðsögn um Ísland.

Þessi ferð er sérstaklega skipulögð með byrjendur í huga. Fyrir fólk sem hefur áhuga á að prófa að hjóla á fjöllum, er nokkuð vel á sig komið líkamlega og mætir með jákvæðni og opinn huga í farteskinu.

DAGSETNINGAR
Frá júní til September 2025

VERÐ
140.000 ISK

HÓPASTÆRÐ
4 - 7 hjólarar
INNIFALIÐ
  • Flutningur til og frá Reykjavík með fólk og búnað
  • Hádegisnesti báða dagana, 3ja rétta kvöldmatur á degi 1 og morgunmatur á degi 2
  • Snakk og orkustykki að vild
  • Gisting í sjarmerandi sveitagistingu í uppbúnum rúmum.
  • Rafmangsfjallahjól og hjálmur
  • Fjallaleiðsögumaður
  • Nauðsynleg öryggistæki og fyrstuhjálparbúnaður
EKKI INNIFALIÐ
  • Persónulegur búnaður sem er nauðsynlegur fyrir hjólaferð
  • Ferðatryggingar
  • Bús, gos og sælgæti

BÓKA FERÐ
Við skipuleggjum þessa ferð eingöngu fyrir sérhópa sem velja sínar eigin dagsetningar.
Sendið okkur fyrirspurn: info@bikecompany.is

DAGUR 1
NORÐAN VIÐ HEKLU
Leggjum í hann snemma morguns frá Reykjavík og keyrum í rúman klukkutíma austur fyrir fjall. Stoppum í kaffi á leiðinni og förum yfir planið. Höldum svo áfram áleiðis austur í Landsveit þar sem við undirbúum hjólin og okkur sjálf. Þegar allir eru tilbúnir byrjum við hjólatúrinn á ansi góðu klifri en verkefni sem er auðvelt á rafmagnshjóli. Ef veður leyfir fáum við magnað útsýni eins langt og augað eygir yfir nærliggjandi sveitir og hraunbreiður. Leiðin liggur áfram meðfram jaðri mosavaxins hrauns og svartrar eldfjallaauðnar sem vekur upp þá tilfinningu að vera „týndur í óbyggðum“. Endum túrinn þar sem að bíllinn bíður til þess að flytja okkur á næsturstað beint í veglega 3ja rétta matarveislu.
DAGUR 2
SUNNAN VIÐ HEKLU
Eftir morgunmat tekur við um 15 mínútna keyrsla eftir Þingskálavegi að komast austur fyrir Ytri Rangá. Við byrjum að hjóla við Pálssteinshraun sem liggur við suðurjaðar Heklu. Náttúrufegurðin er mögnuð og friðurinn fullkominn. Í áranna rás hafa bændur og búalið skilið eftir sig þétt net vegslóða í hrauninu og á nálægum svæðum sem eru eins og hannaðir fyrir rafmagnshjól. Þessar leiðir eru auðveldar yfirferðar, passlega krefjandi og ættu að henta öllum hjólurum sem vilja upplifa ævintýri eins og þau gerast allra best. Mjög gott að klára daginn í sundi og einnig er í boði að stoppa á veitingastaðnum Ölverk í Hveragerði og gæða sér á gómsætri pizzu áður en rennt er í bæinn.

ERFIÐLEIKASTIG
Ferð fyrir óvana fjallahjólara en fólk sem telur sig nokkuð vel á sig komið líkamlega. Leiðirnar eru ekki mjög tæknilegar en þó er þörf á því að hafa einhverja stjórn á hraða og bremsum. Dagleiðir eru um 15 km. 4 - 5 klst á dag með hádegishvíldinni.

TRÚSS
Berum aðeins létta bakpoka yfir daginn. Allt annað dót er hægt að geyma í bílnum.

STÍGAR OG LEIÐIR
Flottustu fjallvegir landsins og þótt víðar væri leitað með smá tvisti af einstigum inná milli. Gætum stundum lent í smá grjóti á leiðunum eða öðrum slíkum ævintýrum.

TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.

ÚTBÚNAÐARLISTI
Hjálmur (ef þið eigið ykkar eigin) og góðir skór fyrir flata pedala.

í bakpoka
  • Langerma hjólapeysa
  • Þunn micro-flíspeysa innanundir
  • Þunn dún- eða primaloft úlpa
  • Gore-tex stakkur
  • Stuttbuxur eða þröngar síðbuxur
  • Púðabuxur (stuttar eða síðar)
  • 2 aukapör sokkar úr ull
  • Hlýir og góðir hjólavettlingar eða hjólagrifflur
  • Sólgleraugu og sólvarnarkrem
  • Myndavél, Go-Pro, GPS, Garmin...
  • Vatnsbrúsar á hjólið og/eða camelpoki
Á næturstað:
  • Handklæði
  • Sundföt
  • Auka nærfatnaður
  • 2 pör af aukasokkum
  • Kósíföt og inniskór
  • Dúnúlpa
Sameiginlegur búnaður sem hópurinn skiptir með sér:  
  • Lágmark fyrstuhjálparbúnaður
  • Burstar, tuskur og nóg af keðjuolíu
  • Pumpur / demparapumpa
  • Fjölverkfæri fyrir hjól
  • Keðjuþvinga
  • Slöngur (Ath. með réttum ventlum m.v. hjól)
  • Dekkjaviðgerðarsett
  • Lítil bensli (plastbönd) / tesateip
  • Keðjuhlekkir
  • Bremsuvökvi og blæðiset
  • Kaplar fyrir afturbremsur/afturgíra
  • Gjörð/dekk

INNIFALIÐ Í FERÐINNI
Við erum með þessi frábæru Specialized Turbo Levo rafmagnshjól innfalin í ferðinni. Þessi fararskjóti gerir hverja ferð fullkomna. Erfiðar brekkur heyra sögunni til og niðurleiðin er jafn fjörug og áður.
LEVO TURBO


eMTB Iceland
MEIRA HÉR+

GISTING OG MATUR

Gistum eina nótt á Minnivöllum í Landsveit sem er þægilegt og fallegt sveitahús. Það er staðsett í friðsælu umhverfi með fallegu útsýni. Uppábúin rúm bíða ykkar og morgun- og kvöldmatur er undirbúinn og reiddur fram af leiðsögumanni.
Hekla Bike Company
MEIRA HÉR+

MYNDAALBÚMIÐ

Ljósmyndir segja meira en mörg orðin. Hér eru nokkrar ljósmyndir úr ferðum okkar á þessum slóðum.
MTB Iceland
MEIRA HÉR+

VÍDEÓ

Hér eru nokkur vídeó þar sem hægt er að sjá stemminguna sem ríkir í ferðunum okkar
TOP