FJALLAHJÓLAROKK 2025
LANDMANNAHELLIR & LANDMANNALAUGAR

ALGJÖRLEGA MÖGNUÐ FERÐ!
Þessi ferð er samansett af 2 hjóladögum þar sem við hjólum (nánast) eingöngu á einstígum. Fjallahjólarar sem hafa ferðast með okkur hafa sett þessar leiðir á lista yfir bestu “single track” í heiminum.
Landmannahellir í Dómadal á Fjallabaki hefur frá fornu fari verið viðkomustaður leitarmanna á Landmannaafrétti og er þar af leiðandi umkringdum þéttum kindastígum sem reynast fullkomnir fjallahjólastígar. Landmannalaugar þarf líklega ekki að kynna neitt frekar, en þar er að finna endalausa möguleika af “single track” leiðum sem zikzakkast um dalinn. Þessar leiðir eru algjör masterpís og verða betri og þéttari með hverju árinu.
ATHUGIÐ AÐ ÞESSI FERÐ ER EINGÖNGU FYRIR “VENJULEG” FJALLAHJÓL
- DAGUR 1
- BROTTFÖR
- Mæting í Sörlaskeið kl. 16:00 og brottför ekki seinna en kl. 17:00. Keyrum á Mathöll Selfoss þar sem við minglum yfir kvöldverði. Leggjum síðan í hann aftur og verðum komnar ekki mikið seinna en um 21:00 á gististað. Komum okkur fyrir í skálanum, minglum og förum snemma í háttinn.
- DAGUR 2
- LANDMANNALAUGAR
- Eftir morgunmat tekur við um klukkutíma keyrsla til Landmannalaugar. Þetta svæði er algjörlega magnað og kjörið til fjallahjólreiða. Heill hellingur af stígum leiða okkur um fjallaskörð, yfr hraun og uppá hryggi. Endalausir möguleikar! Keyrt aftur í Landmannahelli í eftirmiðdaginn, eftir gott bað í heitu lauginni í Laugum.
- DAGUR 3
- LANDMANNHELLIR
- Ræs og dýrindis morgunmatur. Við byrjum að hjóla beint frá skálanum í ca 5 km. á malarvegi. Síðan tekur við frábær leið upp Dómadalshálsinn og niður að Dómadalsvatni. Þar er komið niður á stíg sem leiðir okkur hálfhring í kring um vatnið. Seinni helmingur dagsins er klifur alla leið uppá Löðmund. Klifrið er svo sannarlega niður leiðinnar virði, sem sú allra besta sem við þekkjum! Endum daginn beint fyrir framan skálann í Landmannahelli. Keyrt heim á leið í eftirmiðdaginn.
- Birt með fyrirvara um einhverjar lítilsháttar breytingar

- 2025
- 19 - 21 september
- HÓPASTÆRÐ
- 10 - 20 hjólarar
- VERÐ
- 89.000 ISK (25% staðfestingar gjald)
ATH að það þarf að fara alla leið í greiðsluferlinu áður en kemur að því að velja að greiða fullt gjald eða staðfestingargjald.
- INNIFALIÐ
- Flutningur til og frá Reykjavík með fólk og búnað
- 3ja rétta kvöldmatur á degi 2 og morgunmatur á degi 2 og 3
- Snakk og orkustykki að vild
- Gisting í tvær nætur í svefnpokaplássi
- Fjallaleiðsögumaður
- Nauðsynleg öryggistæki og fyrstu hjálpar búnaður
- EKKI INNIFALIÐ
- Kvöldmatur á leiðinni á degi 1
- Hádegisnestið báða dagana
- Fjallahjól og allur persónulegur búnaður sem er nauðsynlegur fyrir hjólaferð
- Ferðatryggingar
- Bús, gos og sælgæti

- NÆSTU SKREF
- Þegar þú hefur bókað ferðina færðu senda staðfestingu og nánari upplýsingar koma tveimur vikum fyrir brottför.
- SPURNINGAR?
- Endilega sendu okkur tölvupóst ef þú hefur einhverjar spurningar info@bikecompany.is

- MATUR
- Munum ekki verða fyrir vonbrigðum í þessum kafla ferðarinnar!
- Morgun- og kvöldmatur er undirbúinn og reiddur fram af leiðsögumanni. Eldhúsaðstaðan í skálunum í Landmannahelli er til fyrirmyndar. Nóg pláss og vítt til veggja fyrir litla hópa.
- Hádegismatur er næringarríkt og hollt nesti sem að þið mætið með sjálf og við gæðum okkur á þegar best hentar yfir daginn.
- Við fáum líka með okkur aukaorkubari (þurra ávexti, hnetur, kex og súkkulaði).
- * Ef það eru einhverjar séróskir í tengslum við aukaorku þá um að gera að taka slíkt með sér.
- GISTING
- Gistum tvær nætur í svefnpokaplássi í upphituðum fjallaskála í Landmannahelli. Sturtur og vatnsklósett á staðnum. Gerist ekki betra!
- ERFIÐLEIKASTIG
- Ferð fyrir fjallahjólara sem telja sig í góðu líkamlegu formi.
Leiðirnar eru á köflum frekar tæknilegar og þörf er á því að vera með góða hraða- og bremsutækni.
Dagleiðir eru um 15 -20 km. 4 - 5 klst á dag með hádegishvíldinni.
- TRÚSS
- Berum aðeins létta bakpoka yfir daginn. Allt annað dót er hægt að geyma í bílnum.
- STÍGAR OG LEIÐIR
- Flottustu einstigi landsins og þótt víðar væri leitað.
- TRYGGINGAR
- Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.
- ÚTBÚNAÐARLISTI
- Fulldempað fjallahjól, hjálmur og hjólaskór fyrir flata pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel yfirfarið og í toppstandi fyrir ferð.
- í bakpoka
- Langerma hjólapeysa
- Þunn micro-flíspeysa innanundir
- Þunn dún- eða primaloft úlpa
- Gore-tex stakkur
- Fjallahjólastuttbuxur
- Púðabuxur (stuttar eða síðar)
- 2 aukapör sokkar úr ull
- Hlýir og góðir hjólavettlingar eða hjólagrifflur
- Sólgleraugu og sólvarnarkrem
- Myndavél, Go-Pro, GPS, Garmin...
- Vatnsbrúsar á hjóliðeða camelpoki
- Helstu varahlutir sem gott væri að hafa með fyrir hjól af ykkar gerð!
Á næturstað:
- Svefnpoki
- Handklæði
- Sundföt
- Auka nærfatnaður
- 2 pör af aukasokkum
- Kósíföt og inniskór
- Dúnúlpa
Sameiginlegur búnaður sem að við komum með:
- Fyrstuhjálparbúnaður
- Öryggistæki
- Burstar, tuskur og nóg af keðjuolíu
- Pumpur / demparapumpa
- Fjölverkfæri fyrir hjól
- Keðjuþvinga
- Slöngur (Ath. með réttum ventlum m.v. hjól)
- Lítil bensli (plastbönd) / tesateip
- Keðjuhlekkir
- Dekk
- Komið endilega með það sem þið eigið á ykkar hjól