FJALLAHJÓLAROKK: 2021
REYNISFJALL OG FLJÓTSHLÍÐ

Reynisfjall

 

FRÁBÆRAR LEIÐIR!

Fyrri dagur þessarar ferðar er orðin ein af okkar helstu klassíkum og hentar mjög vel fyrir þær sem hafa ekki mikla reynslu af fjallahjólasportinu. Mesti hluti leiðanna er á þéttum og skemmtilegum stígum með mixi af fjallvegum sem eru tiltölulega auðveldir og hraðir yfirferðar. Seinni daginn hjólum við inni í Fljótshlíðinni þar sem undanfarið hefur verið unnið að uppbyggingu fjallahjólaleiða- og stíga.

FORSKRÁNING

VILTU KOMA MEÐ?

Tryggðu þér pláss


DAGUR 1
BROTTFÖR
Brunum austur á Skeiðflöt í eftirmiðdaginn. Keyrslan tekur um 3 klukkutíma. Það er hægt að mæta á einkabílum ef óskað er eftir því. Komum okkur fyrir í tjöldunum, minglum yfir kvöldmatnum og komum okkur snemma í háttinn.
DAGUR 2
REYNISFJALL OG HATTA
Eftir morgunmat keyrum um 15 mínútur til Víkur í Mýrdal. Leiðin sem við hjólum er hreint masterpís, bæði vegna flæðis og landslagsfegurðar. Við byrjum á því að hjóla gamlan fjallveg alla leið uppá fjallið Höttu og þaðan niður göngustíg niður í þorpið aftur. Seinni leiðin liggur upp veginn sem liðast eins og snákur uppá Reynisfjall þar sem tekur við einstigi meðfram öllu klettabeltinu. Útsýnið sem við fáum yfir svarta sanda Suðurstrandarinnar til beggja átta er ólýsanlegt. Hjólum hring á fjallinu og endum á að hjóla niður sama fjallveg til baka í þorpið. Höldum til baka í glamping tjöldin okkar síðdegis.
DAGUR 3
FLJÓTSHLÍÐ
Pökkum saman dótinu okkar og keyrum í Fljótshlíðina. Þar hefur átt sér stað mjög flott uppbygging á fjallahjólaleiðum síðustu ár. Byrjum á því að kíkja á slóðir Þríhyrnings og endum svo daginn í frábærum einstígum sem liggja eins og ormar um skóglendi og túndrur, mýrar og moldarborð. Teygjum saman á þreyttum búknum og kíkjum mögulega í sund áður en rúllað verður heim á leið.
Birt með fyrirvara um einhverjar lítilsháttar breytingar

2021
22 - 24 maí

HÓPASTÆRÐ
15 - 20 konur


SÉRHÓPAR!
Við getum skipulagt þessa ferð fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin leiðir og dagsetningar.
Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is

VERÐ
54.000 ISK (staðfestingargjald 15.000 ISK)

Greiðslur með millifærslu: Banki: 308-26-58041, kt. 580411-1850
INNIFALIÐ
  • Kvöldmatur x2, morgunmatur x2
  • MIðdegis snakk
  • Flutningur á fólki og hjólum til og frá Reykjavík
  • Gisting í glamping tjöldum á Skeiðflöt
  • Fjallahjólaleiðsögn
  • Leiðarlýsing, kort, nauðsynleg viðgerðartól fyrir hjól og fyrstuhjálparbúnaður
EKKI INNIFALIÐ
  • Fjallahjól og allur persónulegur búnaður sem er nauðsynlegur fyrir hjólaferð
  • Hádegisnesti
  • Aðgangseyri í sundhallir Suðurlands
  • Ferðatryggingar
  • Bús, gos og sælgæti

 

NÆSTU SKREF
Þegar þú hefur greitt staðfestingargjaldið fyrir ferðina færðu senda kvittun fyrir greiðslunni. Nánari upplýsingar koma síðan nokkrum vikum fyrir brottför.

SPURNINGAR?
Endilega sendu okkur tölvupóst ef þú hefur einhverjar spurningar info@bikecompany.is

MATUR
Munum ekki verða fyrir vonbrigðum í þessum kafla ferðarinnar!
Morgun- og kvöldmatur er undirbúinn og reiddur fram af leiðsögumanni. Eldhúsaðstaðan í Skíðaskálanum á Dalvík er fín, nóg pláss og vítt til veggja.
Hver og ein nestar sig fyrir hádegisnesti. Það er fín eldhúsaðstaða til þess að undirbúa slíkt.
Látið vita ef þið hafið séróskir eða ef þið eruð með einhvers konar matarofnæmi.

GISTING
Tjöldin eru mjög þægilleg og sængurnar eru dúnmjúkar og heitar. Það er hitateppi í dýnunni sem að við kennum ykkur að stilla þar sem að þau eiga til að slökkva á sér ef þau hitna of mikið yfir nóttina. Tjaldið sjálft er ekki upphitað en það kemur ekki að sök. Við getum keyrt alveg upp að tjaldskörinni, þannig að það þarf ekki að bera neinn farangur langar leiðir. Sturtur og salerni eru bæði við hlöðuna þar sem að eldhúsaðstaðan er og einnig inní í gistihúsinu sjálfu. Ef einhver óskar frekar eftir því að gista inni þá er það einnig í boði. Hlaðan er upphituð með litlum rafmagnsofnum, er rúmgóð og með frábæra eldhúsaðstöðu Við höfum hana alveg fyrir okkur alla helgina.

ERFIÐLEIKASTIG
Ferð fyrir óvana fjallahjólara en fólk sem telur sig nokkuð vel á sig komið líkamlega. Leiðirnar eru ekki mjög tæknilegar en þó er þörf á því að hafa einhverja stjórn á hraða og bremsum. Dagleiðir eru um 15 km. 4 - 5 klst á dag með hádegishvíldinni.

TRÚSS
Berum eingöngu létta bakpoka yfir daginn. Allt annað dót er hægt að geyma í bílnum.

STÍGAR OG LEIÐIR
Flottustu fjallvegir landsins og þótt víðar væri leitað með smá tvisti af einstigum inná milli. Gætum stundum lent í smá grjóti á leiðunum eða öðrum slíkum ævintýrum.

TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.

ÚTBÚNAÐARLISTI
Fjallahjól af vandaðri gerð með framdempara eða fulldempað. Hjálmur og hjólaskór sem þurfa ekki að vera klipptir í pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel yfirfarið og í toppstandi fyrir ferð.

í bakpoka
  • Langerma hjólapeysa
  • Þunn micro-flíspeysa innanundir
  • Þunn dún- eða primaloft úlpa
  • Gore-tex stakkur
  • Fjallahjólastuttbuxur
  • Púðabuxur (stuttar eða síðar)
  • 2 aukapör sokkar úr ull
  • Hlýir og góðir hjólavettlingar eða hjólagrifflur
  • Sólgleraugu og sólvarnarkrem
  • Myndavél, Go-Pro, GPS, Garmin...
  • Vatnsbrúsar á hjóliðeða camelpoki
  • Helstu varahlutir sem gott væri að hafa með fyrir hjól af ykkar gerð!
Á næturstað:
  • Handklæði
  • Sundföt
  • Auka nærfatnaður
  • 2 pör af aukasokkum
  • Kósíföt og inniskór
  • Dúnúlpa
Sameiginlegur búnaður sem hópurinn skiptir með sér:  
  • Lágmark fyrstuhjálparbúnaður
  • Burstar, tuskur og nóg af keðjuolíu
  • Pumpur / demparapumpa
  • Fjölverkfæri fyrir hjól
  • Keðjuþvinga
  • Slöngur (ath. með réttum ventlum m.v. hjól)
  • Dekkjaviðgerðarsett
  • Lítil bensli (plastbönd) / Tesateip
  • Keðjuhlekkir
  • Bremsuvökvi og blæðiset
  • Kaplar fyrir afturbremsur/afturgíra
  • Gjörð/dekk
  • Komið endilega með það sem þið eigið á ykkar hjól
TOP