FJALLAHJÓLAROKK: 2021
SYÐRA FJALLABAK

s-fjallabak

 

TVEIR DAGAR AF HREINU, TÆRU ÆVINTÝRI!

Á Syðra-Fjallabaki er einstök náttúrufegurð og hentar svæðið mjög vel til fjallahjólreiða. Við byrjum ferðina í Hungurfit, hjólum fjallvegi niður í Krók, þaðan á einstigum í Torfahlaup og niður í Álftavatn. Höldum svo áfram Laugarveginn fram hjá Hvanngili og aftur í Emstrur. Seinni daginn hjólum við frá Emstrum og niður í Þórsmörk, sem er seinasti parturinn af Laugarveginum og ein allra skemmtilegasta fjallahjólaleið sem til er.
Stærsti hluti leiðarinnar er á þéttum og skemmtilegum stígum sem eru tiltölulega auðveldir og hraðir yfirferðar með hressilega passlegu mixi af grófum, örlítið tæknilegri einstígum. Trússbíll sér um að koma dótinu okkar á milli skálana á meðan við njótum þess að hjóla.

FORSKRÁNING

VILTU KOMA MEÐ?

Tryggðu þér pláss


DAGUR 1
BROTTFÖR
Brunum uppá Fjallabakið í eftirmiðdaginn. Keyrslan tekur rétt um 3 klukkutíma. Komum okkur fyrir í skálanum, minglum yfir kvöldmatnum og förum snemma í háttinn.
DAGUR 2
EMSTRUR - KRÓKUR - ÁLFTAVATN
Leiðirnar sem hjólaðar verða þennan dag eru meðal okkar uppáhalds leiðum á þessu svæði. Bæði er í þeim gott flæði ásamt fjölbreytileika en einnig er það þessi einstaka landslagsumgjörð sem gerir hana svo frábæra. Frekar langur dagur, en hverrar mínútu virði.
DAGUR 3
EMSTRUR - FLJÓTSHLÍÐ
Pökkum saman dótinu okkar og hjólum niður í Fljótshlíðina. Eftir hádegið hjólum við upp Þórólfsfellið á mjög þægilegum fjallvegi og aftur niður magnaða niðurleið. Teygjum saman á þreyttum búknum og kíkjum mögulega í sund áður en rúllað verður heim á leið.
Birt með fyrirvara um einhverjar lítilsháttar breytingar

2021
25 - 27 júní
1 - 3 júlí - FULLBÓKAÐ

HÓPASTÆRÐ
10 - 15 konur


SÉRHÓPAR!
Við getum skipulagt þessa ferð fyrir sérhópa sem vilja velja sínar eigin leiðir og dagsetningar.
Sendið okkur fyrirspurn og óskið eftir tilboði: info@bikecompany.is

VERÐ
62.000 ISK (staðfestingargjald 15.000 ISK)

Greiðslur með millifærslu: Banki: 308-26-58041, kt. 580411-1850
INNIFALIÐ
  • Kvöldmatur x2, morgunmatur x2
  • MIðdegis snakk
  • Flutningur og trúss á fólki, búnaði og hjólum til og frá Reykjavík
  • Gisting í svefnpokagistingu í fjallaskála x2
  • Fjallahjólaleiðsögn
  • Leiðarlýsing, kort, nauðsynleg viðgerðartól fyrir hjól og fyrstuhjálparbúnaður
EKKI INNIFALIÐ
  • Fjallahjól og allur persónulegur búnaður sem er nauðsynlegur fyrir hjólaferð
  • Hádegisnesti
  • Aðgangseyri í sundhallir Suðurlands
  • Ferðatryggingar
  • Bús, gos og sælgæti

 

NÆSTU SKREF
Þegar þú hefur greitt staðfestingargjaldið fyrir ferðina færðu senda kvittun fyrir greiðslunni. Nánari upplýsingar koma síðan nokkrum vikum fyrir brottför.

SPURNINGAR?
Endilega sendu okkur tölvupóst ef þú hefur einhverjar spurningar info@bikecompany.is

MATUR
Morgun- og kvöldmatur er undirbúinn og reiddur fram af leiðsögumanni í fjallaskálanum.
Hver og ein nestar sig fyrir hádegisnesti. Það er fín eldhúsaðstaða til þess að undirbúa slíkt.
Látið vita ef þið hafið séróskir eða ef þið eruð með einhvers konar matarofnæmi.

GISTING
Við höfum skálann, sem er alveg fyrir okkur sjálfar. Þið þurfið að mæta með ykkar eigin svefnpoka og handklæði. Salerni eru inn í skálanum og fín eldhúsaðstaðan en engar sturtur.

ERFIÐLEIKASTIG
Ferð fyrir vanar fjallahjólakonur sem telja sig nokkuð vel á sig komnar líkamlega. Leiðirnar eru á köflum tæknilegar og nauðsynlegt er að hafa góða hraða- og bremsutækni. Dagleiðir eru um 25 - 40 km. 5 - 8 klst á dag með hádegis hvíldinni.

TRÚSS
Berum eingöngu létta bakpoka yfir daginn. Allt annað dót er hægt að geyma í bílnum.

STÍGAR OG LEIÐIR
Blanda af grófum fjallvegum og einstigum.

TRYGGINGAR
Í fjallahjólaferðum er mikilvægt að vera með góða tryggingu. Ferðatryggingar eru yfirleitt innifaldar í fjölskyldutryggingum og ef ferð er greidd með kreditkorti en við ráðleggjum þér að staðfesta fyrir brottför að þínar tryggingar tryggi þig í þeirri ferð sem þú velur þér, bæði þig og hjólið þitt.

ÚTBÚNAÐARLISTI
Fjallahjól af vandaðri gerð með framdempara eða fulldempað. Hjálmur og hjólaskór sem þurfa ekki að vera klipptir í pedala. Afar mikilvægt að hjólið sé vel yfirfarið og í toppstandi fyrir ferð.

í bakpoka
  • Langerma hjólapeysa
  • Þunn micro-flíspeysa innanundir
  • Þunn dún- eða primaloft úlpa
  • Gore-tex stakkur
  • Fjallahjólastuttbuxur
  • Púðabuxur (stuttar eða síðar)
  • 2 aukapör sokkar úr ull
  • Hlýir og góðir hjólavettlingar eða hjólagrifflur
  • Sólgleraugu og sólvarnarkrem
  • Myndavél, Go-Pro, GPS, Garmin...
  • Vatnsbrúsar á hjóliðeða camelpoki
  • Helstu varahlutir sem gott væri að hafa með fyrir hjól af ykkar gerð!
Á næturstað:
  • Handklæði
  • Sundföt
  • Auka nærfatnaður
  • 2 pör af aukasokkum
  • Kósíföt og inniskór
  • Dúnúlpa
Sameiginlegur búnaður sem hópurinn skiptir með sér:  
  • Lágmark fyrstuhjálparbúnaður
  • Burstar, tuskur og nóg af keðjuolíu
  • Pumpur / demparapumpa
  • Fjölverkfæri fyrir hjól
  • Keðjuþvinga
  • Slöngur (ath. með réttum ventlum m.v. hjól)
  • Dekkjaviðgerðarsett
  • Lítil bensli (plastbönd) / Tesateip
  • Keðjuhlekkir
  • Bremsuvökvi og blæðiset
  • Kaplar fyrir afturbremsur/afturgíra
  • Gjörð/dekk
  • Komið endilega með það sem þið eigið á ykkar hjól
TOP